Wednesday, December 17, 2008

Álan mín

Kengála eða Ála eins og ég kýs að kalla hana er bleikálótt meri (fædd 1998) undan
Degi frá Kjarnholtum og er því hálfsystir fyrsta hestsins míns.

Hana fékk ég í apríl 2007. Ég hafði verið að leita mér að nýjum og traustum hesti til
að hjálpa mér aftur í hnakkinn eftir slæmt handleggsbrot í febrúar það sama ár þegar
ég rakst á auglýsinuna.Mér leist rosalega vel á fyrir utan að þetta var meri en þær eiga
það til að verða frekarfúlar í skapinu svona einu sinni í mánuði og ég var ekki viss um
að ég myndi nenna því en ég lét tilleiðast, skoðaði stelpuna og þá var ekki aftur snúið.

Hún var frekar feit og í mjög lélegu formi, enda nýkomin inn úr 2ja mánaðar hagagöngu
en það var eitthvað við hana sem heillaði mig. Auk þess ef hún hafði veriðí sínu flottasta
formi þá hefði ég örugglega ekki haft efni á henni hehe.

Hún er klárhryssa með meiru og kýs að brokka en þegar hún er komin í smá form er
ekkert mál að halda henni á tölti. Hún hefur ágætan vilja og ekkert mál að fá hana áfram
í reiðtúr hvort sem hún er ein eða með fleirum.

Hún er fallega byggð með sterkt bak og góðar lendar er þó með smá vott af hjartarháls.
Hún ber sig vel í reið, er reist og með ágætis lyftu en þó hún sé ekki fyrstuverðlauna meri
þá er hún flottust í mínum bókum.

Geðslagið er þó það besta við hana.Hún er algjör draumur úti í haga, gengur á móti manni
og er voða kát að sjá mann sér í lagi ef maður hefur eitthvað gott handa henni. Hún er einkar
vinaleg, tekur öllu með jafnaðargeði og er frábær í umgengni. Hún hafðiþó nokkra leiðinda
kækji þegar ég fékk hana fyrst en mér hefur þó tekið að venja hana af þeim.
hún átti það t.d til að hrista sig ívið mikið þegar maður steig á bak og var heldur ekkert á
því að standa kjur, einnig átti hún það til að naga tauminn ef henni fannst hún verabúin að
standa og bíða of lengi en þessir kækjir eru á bak og burt en henni finnst þó enn gott að hrista
sig með mann á baki en geymir það nú þar til lok reiðtúrsins.

Hér eru svo nokkrar myndir af gellunni minni



Ála og Lilja hennar Siggu systur saman í vetur ('08)



Sætar saman stelpurnar ('08)



Við vinkonurnar (júlí '07)



Smá uppstilling (sumar '07)




Flott á tölti (apríl '07)

No comments:

Post a Comment